Oct 22, 2005
Búinn að eignast hamstur!!

Halló! Vá hvað það er langt síðan ég bloggaði! En ég hef fréttir að færa! Ég er búinn að eignast hamstur!! Hann er mjög sætur. Hann er ljósbrúnn og mjög forvitinn. Hann er karlkyns. En önnur frétt:
Ég er í Drengjakór Reykjavíkur og við í kórnum erum að selja kerti fyrir aðventuna. Það eru 10 kerti í pakka og pakkinn kostar 600 kr..En ég hef ekki fleiri fréttir að færa,bæjó! 

Posted at 10:02 am by nesquick
Make a comment  




Jun 29, 2005
Til Belgíu eftir 7 daga!

Hallló! Vá hvað ég hef ekki bloggað lengi, en heimilistölvan okkar  biluð og ég hef ekki komið því í verk að fara í fartölvuna hans pabba, einsog ég er í henni núna. Jæja, bara heilt sumarfrí byrjað!
Það er nú það, því að við förum til Belgíu eftir 7 daga!!! Það verður svooooooooooooooooooooooo gaman! En núna er kominn maður og hann ætlar að setja upp þjófavarnar kerfi! Og á eftir því ætla ég að leika við Friðrik! Jæja, bara kominn tími til að kveðja!
Bæjó!

Posted at 01:31 am by nesquick
Make a comment  




May 30, 2005
Í tölvutíma!

Halló! Núna er ég í tölvutíma! Í skólanum! Þetta er síðasti tíminn svo við höfum frjálst. Núna erum Friðrik og ég að búa til aðra síðu handa okkur báðum. Slóðin er www.blog.central.is/trek. Það þýðir ekki að ég sé að hætta með þessa síðu, ég blogga bara á báðum síðum. Jæja, nú hef ég ekkert annað að tala(blogga)um, svo ég segi bara bæjó!

Posted at 04:16 am by nesquick
Make a comment  




May 10, 2005
Löng hjólaferð!

Halló! Í gær vaknaði ég og fór útá golfvöll með pabba. Við slóum nokkrar kúlur og ég púttaði smá. Svo spilaði ég með lúðrasveitinni í kirkjunni. Það var sko verið í kveðjuveislu barnastarfsins. Svo fór ég, pabbi, mamma og Ingólfur í hjólaferð upp í Fossvoginn. En það var í gær, snúum okkur að daginum í dag. Í dag fór ég í skólann eins og venjulega. Í frímínútunum vorum við Friðrik komnir uppí 150 vers í laginu rúgbrauð með rjóma. Lagið er svona:"Rúgbrauð með rjóóóma, rúgbrauð mað rjóóóma, rúgbrauð með rjóma er gott að fá. Þetta var fyrsta vers, svo kemur annað vers, og það er alveg eins. Rúgbrauð með rjóóma....." Og svo heldur maður áfram og áfram þangað til maður verður ruglaður. Í handavinnu í dag kláraði ég að prjóna únliðsarmband og Friðrik kláraði að prjóna húfu. En úpps, æ ég gleymdi að ég átti að fara til ömmu minnar í dag! Verð að þjóta! Bæjó!

Posted at 08:15 am by nesquick
Make a comment  




Apr 9, 2005
Vatnaskógur!

Halló! Á morgun fer ég á körfuboltamót! Það verður örugglega mjög gaman.  Eeeeeeeeeeeeeeen! Þegar ég verð búinn að skrifa þetta þá ætla ég að fara með mömmu í Smáralindina að skrá mig í Vatnaskóg. Ég ætla nefnilega þangað í sumar. Á eftir því ætlum við kannski í sund. Svo ætla ég að halda áfram með Engla & djöfla. Vona að einhver lesi þetta! Bæjó!

                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                        
 

Posted at 04:28 am by nesquick
Make a comment  




Apr 8, 2005
Englar & djöflar!

Halló! Þegar ég skrifa þetta er ég í matarboði. Í dag fór ég í skólann. Svo fór ég í kornetttíma. Svo fór ég í körfubolta. Svo fór ég að lesa Engla & djöfla eftir Dan Brown. Svo fór ég að borða. Núna er ég alveg að springa. Á sunnudaginn fer ég á körfuboltamót. Það verður mjög gaman. Í skólanum erum við að gera tilraun. Við settum lauk í vatn og erum að gá hvað gerist. Eeeeeeeeeeeeeeeeen! Við skulum ekki tala um það! Já, jamm og jæja! En ég veit samt ekki um hvað ég á að tala....
Nú, þá segi ég bara Bæjó!

Posted at 03:10 pm by nesquick
Make a comment  




Mar 17, 2005
Í lúðrasveit!

Hæ, ég var í lúðrasveit. Ekki lúðasveit. Ég spila á kornet í henni (lúðrasveitinni sko) þeir sem ekki vita hvað kornet er þá er það svona lítill trompet. Þeir sem ekki vita hvað trompet er þá er það hljóðfæri. Þeir sem ekki vita hvað hljóðfæri er þá ættu þeir ekki að lesa þetta. Á undan því að ég var í lúðrasveit var ég heima hjá ömmu minni að hlusta á "Jesus Christ Superstar" í plötuspilaranum hennar. Mér finnst hann (Jesúinn sko) mjög skemmtilegur. Á undan því að ég var hjá ömmu minni var ég í skólanum að læra... og læra... og læra... Allavega, þá lærði ég eitthvað smá og mig langar ekkert að hætta því.(nema í páskafríum eða jólafríum eða sumarfríum eða vetrarfríum...) Vel á minnst, páskafríið byrjar ekki á morgun heldur hinn! Annars, þá vona ég að einhver lesi þetta! Bæjó!

Posted at 10:35 am by nesquick
Make a comment  




Mar 16, 2005
Kominn heim!

Nú er ég kominn heim! Úr skólanum! Út af því að ég var ekki veikur í dag! hóst, hóst! Kannski smá. Við vorum að læra um reikistjörnurnar í skólanum. Ég ætla að læra stjörnufræði þegar ég verð eldri. Eeeeeeeeen! Nóg komið af svona "framtíðar-tali". Mamma mín fór á video-leigu og spurði um plaköt fyrir mig. En það voru engin plaköt til. Aumingja ég! En það er margt hægt að gera í þessum heimi annað en að hengja upp plaköt. Vona að einhver lesi þetta! Bæjó!

Posted at 08:06 am by nesquick
Make a comment  




Mar 15, 2005
Loksins blogga ég!

Loksins blogga ég, eftir allan þennan tíma. Ég, (eða réttara sagt systir mín), fann út hvernig á að blogga! Núna hef ég soldið að segja ykkur. Ég er veikur! (minniháttar kvef). Ég er búinn með samræmdu prófin, og mér gekk ágætlega, fékk 9,0 í stærðfræði og 9,5 í Íslensku. Ég vona að einhver lesi þetta! Bæjó!

Posted at 10:53 am by nesquick
Make a comment  







   





<< January 2012 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
01 02 03 04 05 06 07
08 09 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31








If you want to be updated on this weblog Enter your email here:




rss feed